Þriðja árið í röð mun Europartnerships vinna í samstarfi við Útflutningsráð að flaggskipi sínu, útflutningsþróunarverkefninu, til að styðja við íslensk fyrirtæki í útflutningi.
Hannað til að fylgja eftir UH verkefninu fyrir nýgræðinga í útflutningi, þá styður ÚTSTÍM 2008/2009 verkefnið þátttakendur sem undirbúa sig undir að leita að og velja sér samstarfsaðila, umboðsmenn eða dreifingaraðila. Einnig styður ÚTSTÍM við þátttöku í útflutningsverkefninu og einbeita sér að völdum mörkuðum. Á þessu ári eru átján fyrirtæki sem taka þátt. Undanfarin ár hafa fjölmörgum ÚTSTÍM verkefnum verið hrint í framkvæmd í Þýskalandi, Japan, Mexíkó, á Norðurlöndunum, Bretlandi ásamt fleiri mörkuðum. Átján fyrirtæki tóku þátt í ÚTSTÍM verkefnum með góðum árangri á árunum 2006-2008.
